Ingunnarskóli

Gagnrýnin hugsun í fyrirrúmi

 Áhersla er á að efla nemendur í sjálfstæðum vinnubrögðum og að þeir læri að leita sér upplýsinga með fjölbreyttum hætti. Mikilvægur þáttur í skólastarfinu er að örva sjálfstæða og gagnrýna hugsun og leitast er við að gera það á sem flestum sviðum skólastarfsins. 

Teikning af Fjólu fagna með öðrum krökkum

Góður skólaandi

Markvisst er unnið að því að skapa öruggt náms-og starfsumhverfi og uppbyggjandi skólaanda þannig að nemendum og starfsfólki líði vel. Skólinn er öllum opinn og eru foreldrar alltaf velkomnir til að taka þátt í starfinu eða kíkja í heimsókn. Lögð er áhersla á að nemendur komi fram af virðingu hver við annan og alla sem þeir eiga samskipti við innan og utan skólans. 

Starfshættir

Við hönnun og skipulag Ingunnarskóla var lögð áhersla á að skapa ríkulegt námsumhverfi og stuða að samvinnu, sjálfstæði, sköpun, samþættingu námsgreina og tengslum við grenndarsamfélagið. Við þróun þeirra starfshátta sem einkenna starf skólans er lögð áhersla á starf kennarateyma og frelsi þeirra til sjálfræðis innan þeirra marka sem grundvöllur og sýn  skólans setur. Samræmi í starfsemi mismunandi teyma er tryggt með skipulagðri umræðu og kynningu innan skólans svo teymin megi fá stuðning hvert af öðru og nýta sér það sem best þykir í hverju tilviki. 

Í nálægð við náttúru

Ingunnarskóli er staðsettur í nýju hverfi í útjaðri borgarinnar þar sem stutt er í skemmtilega náttúru sem nýtt er í daglegu starfi og leik. Áhersla er lögð á útikennslu sem samþætt er í allar greinar. 

Samstarf við grenndarsamfélag

Mikið er lagt upp úr því að nemendur þekki hverfið sitt, stofnanir, félagssamtök, helstu kennileiti og sögu hverfisins og að skólinn eigi gott samstarf við grenndarsamfélagið. Samstarf er við ÍTR um starfsemi frístundaheimilis og félagsmiðstöðvar. Tónlistarskóli Árbæjar og kennari frá Skólalúðrasveit Grafarvogs starfa í skólanum bæði fyrir nemendur og almenning, bæði innan og utan skólatíma. Vatnstankar Orkuveitu Reykjavíkur eru ákveðið kennileiti við skólann og er einn  dagur að hausti tileinkaður vinnu og fróðleik í tengslum við þá. 

Þörfum nemenda mætt

Til að bregðast við mismunandi þörfum og getu nemenda og tryggja að þeir fái nám við hæfi er byggt á nánu samstarfi og upplýsingagjöf milli kennara, stoðþjónustu og námsráðgjafa. Athyglinni er þá meðal annars beint að því hvort nemandi þurfi að þjálfa félags og samskiptahæfni eða hvort þörf sé á sérstökum stuðningi á einhverju ákveðnu sviði. 

Stjórnendur

Skólastjóri: Guðlaug Erla Gunnarsdóttir 

Aðstoðarskólastjóri: Regína Ómarsdóttir  

Verkefnastjóri 8.-10. bekk: Guðrún Þóra Bjarnadóttir 

Verkefnastjóri list- og mailverkgreina: Sigríður Rafnsdóttir 

Deildarstjóri verkefna: Guðbjörg Bjarnadóttir  

Deildarstjóri stoðþjónustu: Linda Hrönn Steindórsdóttir

Verkefnastjóri íslenskudeildar: Sigrún Árdís Einarsdóttir  

Skrifstofustjóri: Lilja Rós Jóhannesdóttir  

Umsjónarmaður fasteignar: Kristín Ragnarsdóttir