Ingunnarskóli

Starfshættir

Við hönnun og skipulag Ingunnarskóla var lögð áhersla á að skapa ríkulegt námsumhverfi og stuða að samvinnu, sjálfstæði, sköpun, samþættingu námsgreina og tengslum við grenndarsamfélagið. Við þróun þeirra starfshátta sem einkenna starf skólans er lögð áhersla á starf kennarateyma og frelsi þeirra til sjálfræðis innan þeirra marka sem grundvöllur og sýn  skólans setur. Samræmi í starfsemi mismunandi teyma er tryggt með skipulagðri umræðu og kynningu innan skólans svo teymin megi fá stuðning hvert af öðru og nýta sér það sem best þykir í hverju tilviki. 

Uppeldi til ábyrgðar

Í Ingunnarskóla er uppeldi til ábyrgðar haft að leiðarljósi í öllu skólastarfi. Um er að ræða lífsgildismiðaða uppbyggingarstefnu sem miðar að því að efla jákvæð samskipti, ábyrgð og sjálfstjórn nemenda. Áhersla er lögð á samstöðu um sameiginleg gildi og fáar, skýrar reglur sem styðja við öryggi, vellíðan og nám.

Uppeldi til ábyrgðar byggir á þeirri hugmynd að áhugi og ábyrgð komi að innan. Nemendur eru hvattir til að læra af mistökum sínum, taka ábyrgð á hegðun sinni og fá tækifæri til að leiðrétta og bæta fyrir. Í stað þess að einblína á refsingu er sjónum beint að því hvernig hegðun hefur áhrif á aðra og hvaða val leiðir til uppbyggilegra lausna. 

Teikning af Fjólu fagna með öðrum krökkum

Vaxandi hugarfar

Í Ingunnarskóla leggjum við áherslu á vaxandi hugarfar, sem byggir á þeirri trú að allir geti lært, þróast og tekið framförum með æfingu, þrautseigju og stuðningi. Við hvetjum nemendur til að takast á við áskoranir, læra af mistökum og sjá erfiðleika sem tækifæri til vaxtar.

Teikning af afleggjara í blómapotti.

Heilsueflandi grunnskóli

Heil­sue­flan­di grunnskólar er heil­dræn nálgun sem he­fur það að mark­miði að stuðla að betri heilsu og vellíðan.

Heil­sue­flan­di grunnskóla er æt­lað að styðja skóla í að vin­na markvisst að heil­sue­flingu í star­fi sínu. Í því felst að skapa skólaumhver­fi sem stuðlar að an­dle­gri, líkam­le­gri og félagsle­gri heil­su og vel­líðan ne­men­da og starfs­fólks í samvin­nu við heim­ili og nær­sam­félag. 

Samstarf við grenndarsamfélag

Mikið er lagt upp úr því að nemendur þekki hverfið sitt, stofnanir, félagssamtök, helstu kennileiti og sögu hverfisins og að skólinn eigi gott samstarf við grenndarsamfélagið. Samstarf er við ÍTR um starfsemi frístundaheimilis og félagsmiðstöðvar. Tónlistarskóli Árbæjar og kennari frá Skólalúðrasveit Grafarvogs starfa í skólanum bæði fyrir nemendur og almenning, bæði innan og utan skólatíma. Vatnstankar Orkuveitu Reykjavíkur eru ákveðið kennileiti við skólann og er einn  dagur að hausti tileinkaður vinnu og fróðleik í tengslum við þá. 

Þörfum nemenda mætt

Til að bregðast við mismunandi þörfum og getu nemenda og tryggja að þeir fái nám við hæfi er byggt á nánu samstarfi og upplýsingagjöf milli kennara, stoðþjónustu og námsráðgjafa. Athyglinni er þá meðal annars beint að því hvort nemandi þurfi að þjálfa félags og samskiptahæfni eða hvort þörf sé á sérstökum stuðningi á einhverju ákveðnu sviði. 

Góður skólaandi

Markvisst er unnið að því að skapa öruggt náms-og starfsumhverfi og uppbyggjandi skólaanda þannig að nemendum og starfsfólki líði vel. Skólinn er öllum opinn og er foreldrum velkomnið að taka þátt í starfinu eða kíkja í heimsókn. Lögð er áhersla á að nemendur komi fram af virðingu hver við annan og alla sem þeir eiga samskipti við innan og utan skólans.