Öskudagur í Ingunnarskóla

öskudagur 2026

Í dag var öskudeginum fagnað í Ingunnarskóla og voru það allskyns skrýtnar verur mættu í skólann.

Skólastarfið var brotið upp þar sem nemendum var skipt upp í 4 hópa. Þeir fóru svo á milli svæða á stöðvar. 

Á einu svæði var bingóstöð, á öðru dansstöð, ein stöðin var listastöð og svo var leikjastöð í íþróttahúsinu þar sem kötturinn var m.a. sleginn úr tunnunni.

Dagurinn endaði svo á hádegi með pylsuveislu í mötuneytinu.