Íþróttadagurinn
Í dag var hinn árlegi íþróttadagur haldinn í Ingunnarskóla. Dagurinn heppnaðist enda var veðrið okkur mjög hliðhollt.
Nemendum 1.-4. bekkjar var skipt upp í hópa og nutu allir þess að vera úti í við skemmtilegar þrautir og leiki sem voru á mörgum stöðvum. Foreldrafélagið leigði hoppukastala fyrir krakkana sem slógu svo sannarlega í gegn.
Nemendur 5.-7. bekkjar mættu í íþróttahús Fram og tóku þar þátt í keppnum með nemendum 5.-7. bekkjar Dalskóla og Sæmundarskóla. Að lokinni dagskránni voru grillaðar pylsur. Tókst þetta samstarf mjög vel og voru krakkarnir ánægðir þegar þau fóru heim.
Nemendur 8.-9. bekkjar voru í alls kyns íþróttakeppnum á milli árganga inni í íþróttasal.
Í lok dagsins söfnuðust allir saman á skólalóðinni og dönsuðu saman Superman. Að því loknu gæddu allir sér á pylsum úr mötuneytinu.
Síðar í dag kl. 18 er útskrift 10. bekkjar og svo á morgun eru skólaslit hjá 1.-9. bekk. 1.-6. bekkur mætir kl. 10:00 og 7.-9. bekkur mætir kl. 10:30.