Hnetulaus skóli
Í Ingunnarskóla eru nemendur með bráðaofnæmi fyrir hnetum.
Einstaklingur með bráðaofnæmi fyrir hnetum þarf ekki að borða hnetur til að fá ofnæmisviðbrögð. Nóg er að hann komist í snertingu við matvæli sem innihalda hnetur eða snertingu við einstakling sem hefur verið að meðhöndla hnetur til að valda mjög slæmum og jafnvel lífshættulegum ofnæmisviðbrögðum.
Af þessum ástæðum hefur sú stefna verið tekin að Ingunnarskóli er hnetulaus skóli. Í því felst að matur innan skólans innihaldi ekki hnetur að neinni gerð, hvorki jarðhnetur eða trjáhnetur (pekanhnetur, kasjúhnetur, möndlur o.fl.).
Þetta þýðir að hvorki börn né starfsmenn skólans koma með hnetur inn í skólann. Við viljum biðja foreldra að gæta þess að börnin komi ekki með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt-mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, flestar tegundir af Corny, sumt morgunkorn og fleira.