Heimsókn lögreglunnar í 5. bekk
Í dag komu lögreglukonurnar Sara og Helga í heimsókn til 5. bekkjar. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna fyrir nemendum samfélagslögregluna og fyrir hvað hún stendur.
Eins fengu nemendur fróðlega kynningu á útbúnaði lögreglunnar og þeim þótti ekki leiðinlegt að sjá í nærmynd búkmyndavél, handjárn, talstöðvar og fleiri áhugaverðan búnað.
Í lokin fengu nemendur að prufa ýmsan búnað eins og níðþungt lögregluvesti. Nemendur voru mjög áhugasamir, spurðu góðra spurninga og voru mjög glaðir með heimsóknina.