Framúrskarandi árangur Ingunnarskóla í stærðfræðikeppni
Um 30 nemendur frá Ingunnarskóla tóku þátt í stærðfræðikeppni fyrir grunnskóla sem haldin var í Borgarholtsskóla síðastliðinn þriðjudag. Nemendur skólans stóðu sig einstaklega vel og átti Ingunnarskóli sigurvegara bæði í 8. og 10. bekk.
Lilja Jóhanna Birgisdóttir hreppti 1. sætið í 8. bekk og setti jafnframt met í keppninni með 96 stig, sem er hæsti stigafjöldi í 8.bekk sem náðst hefur frá upphafi keppninnar. Fleiri nemendur úr 8. bekk komust í verðlaunasæti en Hilmir Steinn Ástvaldsson hafnaði í 5. sæti og Jóhannes Rafnar Steingrímsson lenti í 8.–9. sæti.
Sigþór Örn Gunnarsson hreppti 1. sætið í 10. bekk og hefur nú unnið öll þrjú árin sem hann hefur keppt. Frábær árangur hjá honum.
Árangur nemendanna er afar glæsilegur og sýnir vel þann metnað og hæfni sem ríkir meðal stærðfræðinemenda Ingunnarskóla. Jákvætt viðhorf nemenda í Ingunnarskóla til keppni í stærðfræði hefur vakið athygli og þykir aðdáunarverð.