Alþjóðlegi Downs dagurinn

downs

Föstudaginn 20. mars fögnum við í Ingunnarskóla Alþjóðlega Downs-deginum með því að klæðast litríkum og ósamstæðum sokkum 🧦

Við hvetjum alla nemendur og starfsfólk (og reyndar bara alla) til að taka þátt og sýna þannig stuðning og minna á mikilvægi fjölbreytileika.

Í skólanum munu nemendur einnig skreyta og lita sokka sem verða hengdir upp á sameiginlegu svæði í skólanum.

Við mælum með að foreldrar ræði við börnin sín um fjölbreytileika og virðingu fyrir mismunandi einstaklingum.

Sama dag er einnig Alþjóðadagur hamingjunnar, sem er góð áminning um að huga að vellíðan, jákvæðum samskiptum og því sem skiptir okkur máli í daglegu lífi.