Íþróttadagur

Í dag var hinn árlegi íþróttadagur haldinn í Ingunnarskóla. Dagurinn heppnaðist vel þó að veðrið hafi aðeins verið að stríða okkur.
Nemendum 1.-7. bekkjar var skipt upp í hópa og nutu allir þess að vera úti í við skemmtilegar þrautir og leiki sem voru á mörgum stöðvum. Einhverjir bekkir fóru þó og kláruðu daginn innivið.
Nemendur 8.-10. bekkjar voru í alls kyns íþróttakeppnum á milli árganga inni í íþróttasal. Enduðu leikar þannig að 9. bekkur stóð uppi sem sigurvegari.
Í lok dagsins söfnuðust allir saman á skólalóðinni og dönsuðu saman Superman og fóru í langa congaröð. Að því loknu gæddu allir sér á pylsum úr mötuneytinu.
Síðar í dag kl. 18 er útskrift 10. bekkjar og svo á morgun eru skólaslit hjá 1.-9. bekk. 1.-6. bekkur mætir kl. 9:00 og 7.-9. bekkur mætir kl. 9:45.