Dagur íslenskrar tungu

dagur_ísl_tungu_26

Í dag héldum við upp á Dag íslenskrar tungu, sem er haldinn hátíðlegur 16. nóvember ár hvert til að minna okkur á að rækta íslenskt tungumál. 

Nemendur komu saman í sal skólans þar sem skólastjóri flutti stutt ávarp í tilefni dagsins. 

Fyrr um morgunin kom rithöfundurinn Ævar Þór og las upp úr nýrri bók sinni fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Gaman er að segja frá því að nemendur úr 7. bekk afhentu honum tvær sögur sem þeir höfðu samið sérstaklega fyrir hann og vakti það mikla gleði hjá honum. 

Í lok hátíðarsamveru voru veittar viðurkenningar fyrir þátttöku í smásagna- og ljóðakeppni Ingunnarskóla 2026. 

Fjórir nemendur fengu viðurkenningar: 

  • Axel Hreinn Bogason í 10. bekk fyrir besta ljóðið
  • Kristján Snær Þorrason í 5. bekk fyrir bestu söguna
  • Sara Björg Brynjarsdóttir í 9. bekk fyrir fallegasta ljóðið
  • Hinrik Logi Kristinsson í 3. bekk fyrir söguna með besta boðskapinn.  

Það var frábær þátttaka í þessari samkeppni hjá nemendum skólans og vonandi góð hvatning til skapandi skrifa í framtíðinni.