Dagur íslenskrar tungu
Í dag héldum við upp á Dag íslenskrar tungu, sem er haldinn hátíðlegur 16. nóvember ár hvert til að minna okkur á að rækta íslenskt tungumál.
Nemendur komu saman í sal skólans þar sem skólastjóri flutti stutt ávarp í tilefni dagsins.
Fyrr um morgunin kom rithöfundurinn Ævar Þór og las upp úr nýrri bók sinni fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Gaman er að segja frá því að nemendur úr 7. bekk afhentu honum tvær sögur sem þeir höfðu samið sérstaklega fyrir hann og vakti það mikla gleði hjá honum.
Í lok hátíðarsamveru voru veittar viðurkenningar fyrir þátttöku í smásagna- og ljóðakeppni Ingunnarskóla 2026.
Fjórir nemendur fengu viðurkenningar:
- Axel Hreinn Bogason í 10. bekk fyrir besta ljóðið
- Kristján Snær Þorrason í 5. bekk fyrir bestu söguna
- Sara Björg Brynjarsdóttir í 9. bekk fyrir fallegasta ljóðið
- Hinrik Logi Kristinsson í 3. bekk fyrir söguna með besta boðskapinn.
Það var frábær þátttaka í þessari samkeppni hjá nemendum skólans og vonandi góð hvatning til skapandi skrifa í framtíðinni.