Nám og kennsla

Teiknuð mynd af börnum að lesa og skrifa við borð í skólastofu.

Grunnskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá grunnskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Meginmarkmið stefnunnar er að öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.

Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.

Kennsluskipulag

Í kennsluskipulagi er inntaki námsins og námsmati lýst og gefur það kennurum, nemendum og foreldrum yfirsýn um það sem fengist er við í kennslunni. 

Námsmat í Ingunnarskóla

Í Ingunnarskóla er lögð rík áhersla á að námsmat sé skýrt, hvetjandi og leiðbeinandi og styðji markvisst við nám og framfarir nemenda. Nemendum er gerð grein fyrir þeim hæfniviðmiðum sem liggja til grundvallar matinu og hvattir til að taka virkan þátt í námsmatsferlinu. 

Námsmat fer fram jafnt og þétt yfir skólaárið og byggir á leiðsagnarnámi þar sem regluleg, greinandi og uppbyggileg endurgjöf hjálpar nemendum að átta sig á eigin styrkleikum, efla sjálfstraust og skýra næstu skref í námi. Markmiðið er að nemendur nýti endurgjöfina til að meta eigin árangur, dýpka skilning sinn og bæta frammistöðu á ábyrgðan og meðvitaðan hátt.

Leiðsagnarnám

Leiðsagnarnám snýst um að veita nemendum leiðsögn sem hjálpar þeim að ná þeim markmiðum sem þeir stefna að. Markmiðin verða að vera vel skilgreind svo nemandinn, kennarinn og aðrir sem að náminu koma hafi sama skilning á því hvað sé til marks um að markmiðum sé náð. Í leiðsagnarnáminu eru nemendur þátttakendur í námsmatsferlinu. Endurgjöf er regluleg, hefur skýran tilgang, er greinandi, jákvæð og gagnleg, þ.e. að nemendur geti notað endurgjöfina til að meta hvort þeir hafi náð árangri. 

Fjölbreyttir kennsluhættir

Í Ingunnarskóla  fylgir meginþorri nemenda sömu áætlun en áhersla er á að bjóða upp á fjölbreytta kennsluhætti sem gefa nemendum kost á námi við hæfi. Þessu er meðal annars mætt með því að vera með fjölbreytt verkefni á stöðvum þar sem nemendur geta valið sér viðfangsefni eftir getu og áhuga. Samþætting námsgreina hefur frá upphafi verið mikilvægur þáttur í starfi Ingunnarskóla. Námið er að hluta til skipulagt í svokölluðum þemum og stuðst við markmið Aðalnámskrár grunnskóla fyrir allar greinar sem fléttast inn í þemavinnuna. Nemendur eru hvattir til að taka ábyrgð á eigin námi og takast á við verkefni með jákvæðum og skapandi huga. 

Mentor

Mentor er upplýsingakerfi fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans. Forsjáraðilar og nemendur fá aðgangsorð að Mentor.  Á Mentor er hægt að nálgast námsmat, stundatöflur, skólasókn, heimavinnu, bekkjarlista, símanúmer foreldra bekkjarfélaga og fleira.  Einnig geta foreldrar skráð fundartíma á samráðsdögum. Foreldrar eru hvattir til að sækja Mentor appið og nánari upplýsingar eru á heimasíðu Mentor: www.mentor.is

Viðmið um skólasókn

Mikil áhersla er lögð á stundvísi nemenda í skólanum. Öll börn og ungmenni á aldrinum 6 til 16 ára eru skólaskyld og bera foreldrar/forsjáraðilar ábyrgð á því að börnin innritist í grunnskóla, sæki skólann og stundi þar nám.

Ef misbrestur verður á skólasókn ber foreldrum/forsjáraðilum og skólanum að bregðast við. Til þess að þau viðbrögð verði sem árangursríkust hafa grunnskólarnir í Reykjavík sett sér samræmd viðmið og reglur sem þeir vinna eftir. 

Erasmus+

Ingunnarskóli er aðildarskóli að Erasmus+

Erasmus+ er menntaáætlun Evrópusambandsins sem veitir íslenskum skólum á öllum skólastigum tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og samstarfi á alþjóðavettvangi. 

Krakkar spila pógó