Viðtalsdagur og vetrarfrí
Á morgun, miðvikudaginn 21. október, er foreldraviðtalsdagur í Ingunnarskóla.
Nemendur 10. bekkjar ætla að vera með kaffi- og vöfflusölu í mötuneyti skólans á viðtalsdaginn og er það fjáröflun fyrir útskriftarferð nemenda næsta vor. Hægt er að greiða með pening eða millifærslu.
Við verðum með óskilamuni til sýnis. Við hvetjum ykkur til að skoða og sjá hvort þið sjáið eitthvað sem þið saknið. Í lok dags munum við svo taka þá óskilamuni sem verða eftir og gefa til hjálparstofnanna.
Vetrarfrí er í grunnskólum borgarinnar er 22. - 26. október. Á vef Reykjavíkurborgar má finna yfirlit yfir dagskrá í vetrarfríinu.
Kennsla hefst síðan aftur skv. stundatöflu þriðjudaginn 27. október.