Útskrift 10. bekkjar og skólaslit 1.-9. bekkjar

skólaslit 26

Útskrift 10. bekkjar nemenda Ingunnarskóla verður á sal skólans mánudaginn 8. júní kl. 18:00. Gert er ráð fyrir að athöfnin taki um 1 til 1½ klst.

Foreldrar og aðrir aðstandendur eru hjartanlega velkomnir til að samgleðjast útskriftarhópnum okkar. Þetta er stór stund í lífi nemenda sem okkur langar til að þau minnist á lífsleiðinni.

Þriðjudaginn 9. júní verða svo skólaslit hjá 1.-9. bekk Ingunnarskóla. Þetta er skertur skóladagur samkvæmt skóladagatali og mæta nemendur því aðeins á skólaslitin þennan dag. Foreldrar eru sömuleiðis hjartanlega velkomin að vera viðstödd skólaslitin.

Tímasetningar skólaslita:

  • Kl. 10:00 í 1.-6. bekk
  • Kl. 10:30 í 7.-9. bekk

Gert er ráð fyrir að skólaslitin taki um eina klukkustund en í upphafi koma nemendur saman á sal og fara síðan í sína heimastofu og kveðja kennarana áður en haldið er út í sumarið.

Nemendur fá afhentan vitnisburð eftir skólaárið en við hvetjum forráðamenn einnig til að kynna sér hæfnikort inn á Mentor.

Við minnum alla nemendur á að tæma skápana sína í skólalok og fjarlægja lása.

Við minnum einnig á að skila inn öllum bókasafnsbókum til okkar í síðasta lagi 29. maí. Endilega kíkið eftir bókasafnsbókum sem kunna að liggja heima. Það þarf enginn að vera feiminn við að koma með bækur sem skila átti fyrir langa löngu - það eru engar sektir.

Óskilamunir munu síðan vera í skólanum til 12. júní en að þeim tíma loknum verða þeir gefnir til hjálparstofnanna. Við hvetjum því alla að koma við og sjá hvort þið kannist við eitthvað.