Tankagleði
Í dag var árlegi Tankadagurinn haldinn hátíðlegur í Ingunnarskóla. Þá var hefðbundið skólastarf brotið upp. Meðal annars var tankahlaupið sem við byrjuðum á í fyrsta sinn í fyrra.
Nemendur kepptu bæði sem einstaklingar og einnig sem árgangar um það hverjir hlupu flesta hringi á ákveðnum tíma.
Bekkjarsigurvegari Tankahlaupsins var 7. bekkur sem hljóp rúmlega 6 hringi að meðaltali.
Einnig voru veitt einstaklingsverðlaun fyrir flesta hringi á yngsta stigi, miðstigi og unglingastigi.
Við óskum sigurvegurunum innilega til hamingju.
Auðvitað eru allir þátttakendur sigurvegarar og almennt var þátttakan frábær og krakkarnir áhugasamir og duglegir.
Á Tankadeginum er einnig haldin vinsæl kökukeppni Ingunnarskóla en í henni geta nemendur 6.-10. bekkjar tekið þátt. Margar mjög fallegar og skemmtilegar kökur voru sýndar þetta árið og voru veitt verðlaun fyrir þær fallegustu og bestu