Svakalega lestrarkeppnin 2026
Svakalegu lestrarkeppni 2026 er lokið með glæsilegum árangri Ingunnarskóla sem hafnaði í 19. sæti á landsvísu.
Í ár kepptu 108 skólar um allt land og lásu nemendur í 1.-7. bekk eins og þau gátu dagana 15. september til 6. október.
Mikil lestrargleði ríkir í skólanum og meðan á keppninni stóð lásu nemendur Ingunnarskóla samtals 892 bækur og hver nemandi las að meðaltali í 751 mínútu. 4. bekkur las mest allra árganga og Herdís Guðrún í 7. bekk las mest allra nemenda, eða í rúmar 6.000 mínútur!