Sumarkveðja frá Ingunnarskóla
Skrifstofa skólans verður lokuð frá 17. júní vegna sumarleyfa og opnar aftur miðvikudaginn 5. ágúst.
Föstudaginn 21. ágúst bjóðum við nemendur og foreldra velkomin í námskynningu og viðtal hjá umsjónarkennara. Þar gefst tækifæri til að hittast, fara yfir skipulag komandi skólaárs og ræða það sem fram undan er. Gert er ráð fyrir að nemendur og foreldrar mæti í fámennum hópum. Nánari upplýsingar verða sendar foreldrum í ágúst.
Kennsla hefst síðan samkvæmt stundatöflu mánudaginn 24. ágúst 2026 og hlökkum við til að taka á móti nemendum á ný eftir sumarfríið.
Að lokum viljum við þakka kærlega fyrir gott samstarf og samveru á skólaárinu sem er að líða.
Við óskum öllum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs og sólríks sumars og hlökkum til að sjá ykkur aftur í ágúst.