Stærðfræðikeppni grunnskólabarna í MR

stæ keppni mr 26

Frábær árangur enn og aftur hjá nemendum Ingunnarskóla í stærðfræðikeppni.

Fjölmenn stærðfræðikeppni fór fram í Menntaskólanum í Reykjavík í mars þar sem Ingunnarskóli átti glæsilega fulltrúa. Yfir 500 nemendur tóku þátt og reyndu sitt besta.

Sigþór Örn Gunnarsson náði frábærum árangri og hafnaði í 1. sæti í keppni 10. bekkjar. Lilja Jóhanna Birgisdóttir stóð sig einnig einstaklega vel og lenti í 4.–5. sæti í keppni 8. bekkjar.

Það er sérstaklega gaman að nefna að þau sigruðu bæði í stærðfræðikeppni Borgarholtsskóla í lok febrúar, sem sýnir vel hæfileika þeirra, þrautseigju og lausnamiðaða hugsun.

Við erum afar stolt af þeim og óskum þeim innilega til hamingju!