Smiðja í 5. bekk

smiðja_5b

Það var mikið fjör í smiðjum hjá 5.bekk í dag en nemendur fengu að eiga gamla síma sem var verið að skipta út í skólanum.

 Nemendur dunduðu sér við að skrúfa símana í sundur, rannsaka innvolsið, klippa leiðslur og víra og veltu fyrir sér alls kyns tæknilegum atriðum. Virkilega skemmtilegt og áhugavert verkefni.