Páll Óskar kemur á samveru

pall-oskar

Næstkomandi mánudag þann 5. október mun Páll Óskar koma til okkar á samveru klukkan 9:00. 

Hann mun syngja með okkur lagið Eitt af blómunum, en lagið fjallar um fjölbreytileikann og mikilvægi þess að allir fái að njóta sín á eigin forsendum. 

Í tilefni af þessu væri gaman ef nemendur og kennarar myndu á mánudaginn klæðast einhverju GLITRANDI eins og glimmeri, pallíettum eða litríkum fatnaði.  Allt sem er litríkt og glitrar er skemmtilegt og minnir okkur á að við erum allskonar.

Hér er linkur á lagið: https://www.youtube.com/watch?v=XjO5ftWqKvY