Vorskákmót í 2. og 3. bekk

Á dögunum var haldið vorskákmót fyrst í 2. bekk og svo í 3. bekk undir dyggri stjórn Gunnars skákkennara.
15 nemendur tóku þátt í 2. bekk og 17 nemendur tóku þátt í 3. bekk.
Í 2. bekk voru Leó Birgir og Lilja Júlía jöfn í 3.-4. sæti með 3,5 vinninga og hafnaði Svavar Berg í 2. sæti með vinninga. Í 1. sæti endaði svo Kristofer Jakob með 4,5 vinninga.
Í 3. bekk voru Elvar Jökull og Eva Rún jöfn í 3.-4. sæti með 2 vinninga og var Aníta Rún í 2. sæti með 3 vinninga. Í 1. sæti endaði svo Halldór með 4 vinninga.
Frábært hjá þessum krökkum og gaman að sjá hvað nemendur 2.-3. bekkjar eru dugleg í skákinni.