Þakklæti í 3. bekk

Sé því sem við erum þakklát fyrir gefinn gaumur komum við auga á svo ótrúlega margt sem er dýrmætt en við tökum sem sjálfgefnu í annríki dagsins.
Þakklæti er tilfinning sem eykur vellíðan og lífshamingju og því mikilvægt að veita henni athygli. Í þriðja bekk er unnið með þakklæti þessa dagana, nemendur velta fyrir sér fyrir hvað þeir eru þakklátir fyrir í sínu daglega lífi. Nemendur veltu líka fyrir sér hvernig þau gætu sýnt þakklæti í garð annarra og þannig sýnt góðvild. Flott verkefni og góð áminning fyrir okkur hin. Fyrir hvað er þú þakklát/ur í dag?