Sumarkveðja

sumar25

Skrifstofa skólans verður lokuð frá 16. júní og opnar aftur að loknu sumarleyfi miðvikudaginn 6. ágúst.

Fimmtudaginn 21. ágúst verða nemendur og foreldrar boðaðir til námskynninga og viðtals hjá umsjónarkennara. Gert verður ráð fyrir að nemendur og foreldrar mæti í fámennum hópum þar sem farið verður yfir skipulag og skólaárið. Nánari upplýsingar verða sendar til foreldra í ágúst.

Fyrsti skóladagur verður föstudaginn 22. ágúst 2025 skv. stundatöflu.

Starfsfólk Ingunnarskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og þakkar fyrir samstarfið á liðnu skólaári.