Eyrún Björg í grunnskólamóti Norðurlandanna

eyrún2

Dagana 19. til 23. maí sl. fór grunnskólamót Norðurlandanna fram í Kaupmannahöfn.

Eyrún Björg nemandi í 8.b Ingunnarskóla, sem spilar með 4. flokk Fram, var valin til að spila með í Reykjavíkur úrvali stúlkna í fótbolta.

Liðinu gekk mjög vel og vann mótið með 8-0 sigri gegn Danmörku, 3-1 sigri gegn Noregi og 1-1 jafntefli gegn Finnlandi.

Frábær árangur hjá Eyrúnu og félögum í liði Reykjavíkur.