Óskilamunir

óskilamunir

Óskilamunir í Ingunnarskóla eru geymdir til vinstri við aðalinngang þegar gengið er inn í skólann.

Við biðjum ykkur um að skoða vel hvort þið kannist við eitthvað. Alveg sæmilegt magn er komið í óskilamuni þrátt fyrir að skólinn sé nýbyrjaður.

Við hvetjum alla foreldra til að merkja fatnaðinn hjá börnunum ykkar því þá kemst þetta alltaf til skila. Við förum reglulega yfir óskilamunina og getum skilað öllu sem er merkt í réttan skáp eða fatahengi.

Við ætlum að tæma óskilamunina okkar þrisvar sinnum yfir árið. Fyrst eftir námsviðtöl í október, síðan eftir námsviðtöl í febrúar og svo eftir skólaslit.